Anna Þóra Jóhannsdóttir

Hvað er að gerast í Lúxlandinu??

03.07.2007 11:21:21 / annathora

EIN AÐ ÞYKJAST VERA ÉG.........!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Maður hefur verið í langri pásu frá blogg heiminum. En þar sem ég fekk bendingu á það í morgun að önnur stelpa væri að nota myndirnar mínar og þykjast vera ég hef ég nu lokað öllum aðgangi að myndunum mínum úr Lúxemborg.

Verð að segja að ég er full hneykslan á því hvernig fólk getur hagað sér, how low can you go ef fólk getur ekki komið undir sínu eigin nafni á veraldarvefnum!!!

 Þessi stelpa hefur haft e mailið annapanna216@hotmail.com og þeir sem vita eitthvað meiga alveg láta mig vita..!

Hún er að ráðast inn í mitt einkalíf sem er lögbrot og guð má vita hverju hun hefur logið við fólk upp á mig, þar sem hún er t.d búin að vera með myndir af mér á desktopinu hjá sér og sendandi strákum myndir af mér segjandi guð má vita hvað.

 KV ein bálreið::evil::evil::evil::evil::evil::evil::evil:


» 13 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 15:58:35 / annathora

;)

 

Jæja what´s going on in the brain house... mar er bara ekki að standa sig í þessu bloggi :S En hva er buið að gerast síðan ég bloggaði síðast.. ekkert rosalega margt en eitthvað þó :)

Ég komst að þann 9. mars í áhugasviðskönnunina hjá HÍ þannig að þann 9 mars lá leið mín suður til að taka könnunina :) Um kvöldið átti svo hún Rakel  20 ára afmæli og kíktum ég og Inga til hennar í smá party á Sólon :) En ég og Inga vorum ekkert agarlega lengi og kiktum bara smá rúnt svo skutlaði hún mér heim til Kötlu og Baldurs en þar er víst heimili nr 2 hjá mér um þessar mundir hehe :) En þegar ég kom heim var Katla bara í stuði á náttfötunum og vildi fara út að djamma og ég sagði nú ekki nei við því :) En það var bara voða gaman svo hitti ég lika hana Kristinu en hún var ný komin frá lifinu í lux og flutt á klakan, æði að sjá hana aftur :) Daginn eftir borðuðum við þessa dýrindis steinasteik heim hjá Kötlu og svo var djammið endurtekið ;)

16 mars var förinni aftur haldið suður, þar sem ég var að fá út úr könnunini og svo var Fred líka að koma í smá heimsókn :) Könnunin kom bara ágætlega út... ég á sem sagt að fara í einhvað tengt heilbrigðisgeiranum og svo var alveg miklu meira og heil mikið að lesa úr..! En Fred kom hingað á klakan og stoppaði í rúma viku þar sem að það var frí í skólanum hjá honum. Við vorum mest alla vikuna í borginni. En við tökum nú samt smá djamm ;) Á laugardeginum bauð Hrabba og Júlli okkur í mat ásam Birnu, Fúsa, Söru og Svenna. Kjúllinn hennar hröbbu var bara hið mesta lostæti og það var bara svaka gaman hjá okkur :) Síðan fórum við í party til Kötlu og Baldurs og síðan var förinni haldið á NASA í júrovísjon diskó þar sem að Palli Óskars var að þeyta skífum :)

Ég hélt að þessi helgi yrði bara róleg en NEI hún Eyrún sem var by the way 21 árs þann 21 febrúar bað mig að kíka í bæinn til sín, hvað gerir mar ekki fyrir vini sína ;) En það er víst vísindaferð á föstudaginn hjá Hí sem að hún er búin að ská okkur í :) Elisabet og Soffía fara líka og það er nú langt siðan ég hef djammað með þeim skvísum og hlakka ég bara til að eyða helginni hjá Eyrúnu minni :)

Ég er ábyggilega að gleyma einhverju.... en ég er komin með vinnu hérna í Grundó þannig ég get safnað mér pening áður en ég stíg inn í háskólan :) Svo átti hún Fanney litla prinsessu í síðustu viku og hún er ekkert smá sæt :) Veðrið í firðinum er alveg að gera sig og ég fór með Neró litla upp í fjall í dag og leyfði honum að spóka sig óbundinn og það var ekkert smá gaman að sjá hann því það er náttla snjór hérna og hann er ekkert svo rosalega stór, hann hreinlega sökk sum staðar... ;)

En jæja ég verð að fara vera duglegri að skrifa hérna.... ég læt ykkur vita hvernig helgin fór ;)Verið nú dugleg að kvitta því annars nenni ég bara hreinlega ekki neitt að blogga hérna hehe ;)

Bye bye cuties ;)     X lúx skvísa er out;)


» 17 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 14:16:51 / annathora

Annan á íslandinu

Já komið þið öll sæl ;)

Það liggur við að maður sé búin að gleyma lykilorðinu inn á sitt eigið blogg... held ég sé búin að setja met, hugsa að það hafi aldrei liði svona langt á milli bloggs hjá mér!

En hvað er að frétta af mér? hehe það er nú svo sem ekkert agarlega mikið 8| Er aðallega enn að leita mér að vinnu og hugsanlegu húsnæði líka... jú jú er búin að vera að leita að vinnu hérna í kringum Grundó en það er bara voða lítið að fá hérna í naflanum8| Þannig ég hugsa að ég endi í borg óttans he he :) Ég er allavega buin að vera sækja um vinnur þar og umsóknarfresturinn endar á einni í dag og ég býð spennt að sjá hvað kemur út úr henni ;) Þannig ef ég finn einhvað spennó í borginni þá er það bara að finna sér herbergi og koma græna slíminu í bæinn, sem ætti ekki að vera mikið vandamál... því nú kem ég með ótrúlegar fréttir lesendur góðir, GRÆNA SLÍMIÐ komst í GEGNUM skoðun hehehehe ótrúlegur kaggi, eða það finnst mer allavega svona miðað við það  að hann var herna fyrir utan í ár óhreyfður ;)

En í augnablikinu meðan ég er að fá þetta með vinnu og svona á hreint er ég einka au pairin hennar mömmu :) Au pair starfinu lýkur aldrei hehe ;) En ég er ekkert að standa mig voða vel í uppeldinu því að hann Neró minn getur ekki hætt að kúka herna inni:evil: serstaklega þar sem naflinn er rok og rigningar rasskat og hann vill hreinlega ekki fara út og gera þarfir sínar.....!!!! Þannig ég er bara hérna á fullu með blá gúmmíhanska að týna þetta upp eftir hann :( he he he EN hann er alltaf jafn sætur :D

Svo er ég farin að hlakka rosa til að fara læra meira og komast í háskólan ;) Nörrinn að koma fram aftur hehe :) Ég er búin að panta mér tíma í HÍ til þess að spreyta mig á svokallaðri áhugasviðskönnun strong.... og vonandi kemur einhver leyndur áhugi þar fram hehe nei nei segji svona en þetta vonandi hjalpar mér aðeins til að sjá þetta allt saman betur ;) Var að vonast til að geta tekið könnunina þann 9 feb því dagurinn hentar vel þar sem að hún Rakel á tvítugs afmæli og ætlar að halda upp á, hefði getað slegið 2 flugur í einu höggi  ;) En því miður er fullt í þessa könnun og næstu könnun líka og það lýtur út fyrir það að ég komist ekki að fyrr en 13. mars! Það lýtur út fyrir það að það sé nóg af fólki eins og mér og Maríu fæddar í tvíbura merkinu og höfum ekki þann hæfileka að geta ákveðið okkur hehehehe ;)

Jæja veit nú ekki hvað ég á að segja meira hérna....8| Þannig ég kveð ykkur bara og hafið það sem allra best :)

Love ya pípól 8)

Kv fyrverandi lúx skvísa ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 12:00:52 / annathora

Miss óákveðin ....!

Nú er árið 2007 gengið í garð, ótrúlegt hvað tíminn flýgur frá manni. En ég vil óska öllum gleðilegs árs  og þakka fyrir það gamla og ég vona að nýja árið leggjist bara vel í alla ;)
Árið 2006 var sko heldur betur litríkt og skemmtilegt og ég vona að þetta ár verði eins :) Nú er ég komin heim í kuldan á klakanum og orðin fyrverandi lux pera... ég verð að viðurkenna að það er pínu skrítið að vera ekki lengur út í luxemborg.
Tíminn minn hérna heima er búinn að vera æðislegur :) Alveg yndislegt að koma aftur til fjölskyldu og vina :) Svo kíkti hann Fred í heimsókn og dvaldi á klakanu i rúmar 2 vikur :) En núna er hann farinn til lux landsins eins og hinar perurnar minar :( :( :(
Ég er ekki alveg viss hvað verður næstu daga, ég er búin að vera í húsnæðisleitum en það gengur hálf brösulega þar sem að vinir mínir eru allir búnir að kaupa eða eru að leigja og ég bara ein eftir *grát* :(  Er samt að bíða eftir símtali með íbúð en þarf að redda leigjanda með mér... nennir eh að bjóða sig fram til að búa með mér ;);) i am really easy to live with spurjiði bara hana Berglindi hehe ;) En perurnar mínar koma heim í sumar og ég vona að Fred komi lika þannig að þá verður nóg af fólki til að búa með ;) Væri kósý og í ódýrara kantinum að búa heima í naflanum en það er bara svo litla vinnu að fá og ég held ég nenni barasta ekki í rækjuna ef ég á að segja eins og er!!! Svo eru perurnar að reyna að draga mig aftur út því að Fred bauð mér að búa heima hjá sér ef ég vildi og hann myndi redda vinnu og alles fyrir mig þangað til skólinn byrjar, það er frekar freistandi ;) En ég sé til næstu daga hvað ég geri, hef enn ekki ákveðið neitt :(
En haustið er meira ákveðið því að ég er búin að ákveða að fara í háskólan ;) Hvaða fag verður fyrir valinu kemur í ljos en ég hugsa að það verði einhvað líffræði tengt :) Hlakka rosa til að fara læra aftur, farin að sakna þess pínu ;)
Jæja þetta er bara komið gott nenni ekki að skrifa eh mikið ;) Verið dugleg að kvitta og ég vona að ég verði búin að ákveða hvað ég geri áður en ég skrifa næstu færslu ;)
Love u pípól ;)
Over and out Anna x lux skvísa ;)

» 16 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 16:10:57 / annathora

Rúmir 2 dagar ;)

GUÐ MINN GÓÐUR ég er að fara heim ekki á morgun heldur hinn og þið getið ekki ýmindað ykkur hvernig mér líður.. veit það varla sjálf... þvílik tilhlökkun að koma heim og líka pínu kvíði fyrir að vera fara héðan eftir næstum árs dvöl 8| Það eru nú sumir á því að Annan eigi eftir að koma með skottið milli lappana aftur til lúxlandsins hehe ;) veit ég er ómissandi but that´s life hehe ;) Ég er allavega byrjuð að pakka niður og á ekki mikið eftir þar sem ég var búin að senda svo mikið á undan mér heim ;)

Vikan var bara mjög skemmtileg ;) Á miðvikudaginn fórum við perur út að borða, svona síðasta kvöldmáltíðin okkar allra saman... það var bara mjög gaman og góður matur :) Eftir matinn skelltum við okkur niður í bæ nema ég og Berglind lendum náttla allltaf í einhverju skemmtilegu og komumst við ekki úr bílastæðinu fyrir utan veitingarstaðinn fyrr en ábyggilega korteri síðar :evil: Shætan hvað ég var pirruð.. ég var nákvæmlega bara föst því að bíllinn sem við vorum á er svo langur og fólk búið að leggja bílunum sínum þannig að ég var bara FÖST..... ufff pirringur að hugsa um það hahaha en vegna ökuhæfileika minn gat ég nú á endanum losað bílinn hehe ;) Þegar niður í bæ var komið byrjuðum við á því að fara í sumarbústaðinn hann Víking haha ;) Svo niður á Light bar og þar fengu stelpurnar sér pínu í tánna :) Kvöldið endaði á Muko Muko... avar skemmtilegt kvöld og má segja að við dönsuðum af okkur rassinn þar haha :):)

Fimmtudeginum var förinni haldið á vit ævtintyranna þar sem að við vissum ekki alveg hvert við vorum að fara haha og þar sem að við erum tvær litlar ljóskur getur allt gerst :) En við vorum sem sagt að reyna að finna einhvern fótboltavöll hérna í luxemborg því að hann Fred okkar var að spilla :) Haldiði ekki að við stöllur höfum bara fundið þetta strax, ótrúlega glöggar ;) Þegar á staðinn var komin voru auðvitað bara karlkyns áhorfendur og fannst þeim frekar skrýtið að við værum þarna að horfa dont know why hehe allavega þegar við vorum að labba frá vellinum var einhvað kallað og við litum við, haldiði ekki að allir karlarnir hafi verið glapandi á flotta fotbolta rassinn okkar hahahahahaha :):)

Föstudagurinn var svo rólegur þar sem ég og Bergind vorum bara að passa, elduðum saman handa dúllunum okkar ;) Svo fór ég bara að glápa á TV þegar ég var búin að hátta og sofnaði yfir imbanum ;)

Laugardagurinn var svo bara mjög skemmtilegur...Ég og Berglind kíktum auðvitað í búðir ;) Um kvöldið ætlaði svo hann Fred minn að bjóða mér út að borða sem hann og gerði ;) En þegar við vorum komin á staðinn haldiði að Berglind og Tóta hafi ekki setið þar og beðið eftir okkur :):):) Elvis og Bimó áttu nú lika að vera þar en strákar eru svo óstundvísir, þannig að við vorum bara 4 sem að borðuðum þennan dýrindis mat á takabó ;) Fred var sem sagt búin að plana að við sex ættum öll að borða saman og gera svo einhvað skemtilegt eftir matinn en ég helt við yrðum bara tvö hehe... eftir matinn bættust svo Gabriel, Bímó og vinur hans í hópinn :) Tókum nettan ég hef aldrei leik og þar komst ýmislegt í ljós hahaha :) Síðan fórum við til Tríer og ja ég geri eins og Berglind og vara mömmu og pabba við og segji þeim helst að hætta bara að lesa núna :) En ja við fórum á erotik messe haha þar urðum við vitni að alls kyns uppátækjum en ég verð að segja að gellurnar voru frekar söbí en karlpeningurinn fílaði þetta enda var aldurinn þarna inni svona 40 plús nánast haha :) En við náðum að skoða alveg helling af alls kyns tólum og horfðum á einn karlmann hátta sig alveg hahah bara fyndið ;) En ja þetta var bara frekar fyndið og skemmtilegt :) Eftir þetta fórum við á diskó night á einhverjum stað, reyndar voru flest lögin ekki að gera sig en við náðum að skemmta okkur þrátt fyrir það ;)

Sunnudagurinn var erfiður, erfitt að vakna haha ;) En við stöllum kíktum again í búðir og ég þetta skipti varð ég þvi ég þurfti að kaupa mér ferðatösku ;) Hún kostaði ekki nema 20 evrur þannig ég vona að hún komi í heilu lagi út úr flugvélinni hehe :) Um kvöldið fengum við okkkur svo subway og síðan lá leiðinni í pottinn :) ahhh svo noto :)

Í kvöld er ég bara að passa litlu dúllurnar mínar þannig ég kannski klára að pakka þegar þau eru farin í háttinn... ;)

Ufff hvað það verður erfitt að fara héðan frá lúx en mar á alltaf eftir að koma í heimsókn allavega... svo þarf ég að kv hann Fred minn en við sjáumst von bráðar aftur þar sem að hann kemur þan 27. des heim á klakalandið og mun dvelja þar í hálfan mánuð ;) Það verður gaman að fá hann til Íslands þar sem að hann hefur ábyggilega aldrei séð neitt líkt klakanum og hvað þá nafla alheimsins ;) Elsku perurnar mínar koma lika aftur hingað til lux nema ég þannig ég á eftir að sakna þeirra allra óendanlega mikið og auðvitað á mar eftir að sakna lux fjölsk. og litlu krílanna :(

Jæja ég hef ekki meira að segja í bili og fólk þið eruð bara alls ekki að standa ykkur í að kommenta sko, mar fer bara að hætta að skrifa einhvað á þessa síðu..! :) Hlakka til að sjá ykkur heima eftir umm já rúma 2 daga ;) Love u pipol og lúxskvísan er over and out í bili ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 01:00:00 / annathora

8 dagar heim ;)

Akkurat núna er klukkan átján mínótur yfir eitt að nóttu til hérna í lúxemborg og ég er að blogga... einhvað hlýtur að vera að hehe !!! Allavega ástæðan fyrir því að ég er vakandi er sú að ég er ný komin úr bíó með henni Berglindi minni, við fórum í bíó því við höfðum nákvæmlega ekkert að gera.. en viti menn, haldiði að við stöllur höfum ekki bara lent á þrusu góðri mynd.. The Departed, gef henni bara næstum fullt hús ;) Svo sofnaði ég líka í klukkutíma eftir kvöldmatinn í kvöld þannig ég er ekkert voða bjartsýn að ég sé á leiðinni að sofna einhvað strax... 8| Samt mar veit ekki sko, þeir sem að þekkja mig vita að ég get sofnað á hreinlega ótrúlegustu stöðum, það mætti halda að það væri enhvers konar on og off takki á mér... skil mig stundum bara ekki!!

Like i told u people þá var ég búin að pakka í 4 töskur seinast... nú jæja tvær af þeim voru litlar og eru komnar heim á klakan, núna sit ég uppi með 3 stórar ferðatöskur sem að geyma um 60 kg já já þið eru að lesa rétt 60 gadd demit kíló! og já það kostar um 30 þús kjellinn að senda það með blue bird heim á klakan, en þar sem ég á svona góða au pair fjölskyldur buðust þau til að borga helmingin fyrir mig :):):)

Helgin var bara frekar róleg myndi ég segja, chill á föstudaginn og ég var bara að nördast í tölvunni því að það voru allar perurnar að passa nema ég og María og við nenntum ekki að djamma bara tvær. Laugardagurinn var svo bara tekinn hálf rólega líka, ég kláraði að versla allar jólagjafirnar þannig að sá hausverkur er búinn ;) Svo kíktum ég og Berglind niður í bæ til að fá okkur í gogginn um kvöldið.. og oft sem áður lendum við í skemmtileg heitum, það þurfti akkurat að loka öllum leiðum niður í bæ bara af því að ég var að deyja úr hungri og það var frííííísing úti shætan man... svo lentum við bara í einhverjum dónum í umferðinni sem að reyndu að troða sér eins og þeir gátu.. Any way me and Berglind tölltum niður í miðbæ í bara liggur við frosti en við vorum það heppnar að fá gefins þessa flottu blá hreindýra vettlinga.. það var einhver svaka jólahátið eða einhvað niðri í bæ og þess vegna var öllu lokað... en það var gaman að rölta þarna og sjá :) Seinna um kvöldið var förinni haldið til Þýskalands með Flinston og Gabríel, þeir sem að lesa bloggin mín vita að við hörum farið tvisar áður til Þýskalands til að djamma en án árangurs því að á enhvern undarlegan´hátt misheppnast það bara alltaf... þannig að við Berglind hugsuðum bara jæja allt er þegar þrent er... og við kidlum á það... Til Germany við fórum... Gátum við djammað??????? HEHE Ó NO Bílinn drap bara á sér í miðri Tríer ..! COME ON! jæja við gátum litið annað gert en að ýta bíl druslunni á öruggan stað... og bílnum var ýtt og þegar honum var buin að vera ýtt svoltíið sáum við að það þýddi nú ekki mikið þar sem að veginum var lokað fyrir framan okkur og nakvæmlega engin stæði....8| Nú jæja það þýddi þá ekkert annað en að snúa bílnum við og það gerðum við með því að ýta honum... tók sinn tíma í þessari þröngu götu en það tókst þá ákvað flinston að prufa aftur að kveikja á bílnum og viti menn það tókst :haha: Við ákváðum samt að keyra heim því ekki nenntum við að lenda í enhverjum vandræðum seinna um nóttina... á leið okkar út úr Tríer gerist þetta aftur nema á pínu leiðinlegri stað á miðjum gatnamótum þar sem að frekar mikil umferð var.. kreísí.. við létum okkur renna í einhvað stæði meðan að aðrir ökumenn hrisstu hausinn yfir aksturslagi okkar... 8| Flinston hringdi í broðir sinn til að koma og pikka okkur upp því ekki treystum við okkur í að keyra heim til Lúx og hvað þá upp 3 km langa brekku sem við þurftum að fara upp til að komast frá Tríer og upp á hraðbrautina... þannig að biðum heil lengi og prufum nokkrum sinnum að keyra og tjekka hvort bílinn myndi drepa á sér... sem hann og gerði nokkrum sinnum... svo datt strákunum allt í einu í hug að fara aðra leið úr Tríer sem við loks gerðum.. og viti menn við komumst heim heil að höldnu og bróðir Freds gat ferið heim að sofa... þannig að þetta kennir okkur bara eitt ALDREI AFTUR TIL ÞÝSKALANDS AÐ DJAMMA..... við erum greinilega bara ekkert velkomin þangað...!

Ufff það eru 8 dagar heim.. ég bara trúi þessu ekki, mér finnst þetta svo óraunverulegt.. þið getið ekki ýmindað ykkur hvað mér finnst þetta skrítið... En ég er að deyja úr spenningi að koma heim til ykkar :):) Og já það var breyting á.. ég kem heim 20 ekki 19 þar sem að vélin var bara troðin og ekkert pláss fyrir eina ljósku... en það var kannski bara fínt þar sem að Sigrún sagði mér að flugið 19 hefði verið kvöldflug ekki mjög henntugt fyrir pabba að ná í mig, en í staðin lendi ég um 4 leytið þann 20 sem er bara finn tími ;)

Planið fyrir þessa viku var peruhittingur á miðvikudaginn þar sem þetta er seinasti hittingurinn okkar allra saman, en ég og Berglind erum ekki alveg vissar hvort við komumst... en það kemur bara í ljos ;) Annars verðum við bara að djamma um helgina en þá eru nokkrar perur farnar heim :cry: Og mikið á ég eftir að sakna peranna minna :(:(:(:(

En jæja ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja meira... þannig ég segji bara að skvísan er over and out og verið nú dugleg að kommenta herna ;) Esska ykkur ;*


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 13:00:30 / annathora

14 dagar í heimkomu :)

 

19 dagar í aðfangadag... að hugsa sér! 14 dagar í heimkomu.. ótrúlegt!

Tilhlökkunin er sko heldur betur farin að segja til sín núna, ég er að reyna hugsa ekki mikið um að ég sé að fara heim eftir hálfan mánuð en það er næstum því ómögulegt að hugsa ekki um það... Mamma sagði mér að pabbi og Neró litli myndu koma og sækja mig á flugvöllinn :):) guð LOKSINS fæ ég að sjá litla krúttið okkar hehe svo verður mamma í fríi fyrsta daginn minn á Íslandi :) svo að litla stelpan þurfi ekki að taka ein upp úr töskunum... djok hehe ;)

Hvað hef ég verið að gera á árinu? Jú alveg heil mikið :) í enda febrúar keyrði ég með fjökskyldu minni yfir Þýskaland og til Austuríkis þar sem tók við nokkra daga skíðaferð í ölpunum, aðrar og eins skíðabrekkur hef ég aldrei á ævi minni séð enda hef ég aldrei áður farið í skíðaferð, fegðurðin var alveg hrein ótrúlegt og að skíða þarna er eiginlega bara ólýsanlegt! ;) Um páskana var förinni svo haldið til Afríku, nánar tiltekið Túnis.. þar dvaldi ég með fjölskyldunni og annari fjölskyldu, mikið upplivelsi að koma til Afríku þar sem ég hef aðeins ferðast um í Evrópu... :) Eftir Túnis ferðina keyrði ég með vinum mínum í gegnum Belgíu og yfir til Amsterdams.. meiriháttar borg og engri lík skal ég segja ykkur, auðvitað fór mín að skoða rauða hverfið og það er sko aldeilis spes að labba þarna og sjá þetta, hefði aldrei getað ímyndað mér að þetta liti svona út! Svo má ekki gleyma ferð minni til Tenerife þar sem ég fór að hitta foreldra mína sem var náttúrulega bara það æðislegasta og ég get ekki einu sinni lyst því með orðum hversu yndislegt það var að sja þau eftir 7 manaða fjarveru! Eftir Tenerife ferðina fór ég til nýju fjölskyldunar minnar... fljótlega fórum við svo til Frakklands þar sem haldið var gólfmót og við krakkarnir kíktum í Disney garðinn og mæli ég hiklaust með honum fyrir alla :) Eftir það fór ég með fjölks minni og Berglindar til Alicante og jájá við gellur sóluðum okkur þar og heldum upp á 20 afmælið hennar Berglindar ;) Seinasta ferðin mín var svo til Vínar sem er alveg svakalega sjarmerandi borg ;)

Svo má ekki gleyma öllum ferðunum sem maður fór með perunum sínum.. en vorum talsvert duglegar að kíkka til frakklands og þýskalands að versla, svo má nú ekki gleyma öllu djamminu okkar og skemmtilegu kvöldunum sem við höfum eytt saman... ég mun allavega aldrei gleyma því og ég veit að við flestar munum alltaf muna eftir þessu ævintýri okkar ;) Perur við verðum að fara ákveða hvort við eigum að hafa sumarbústaðar ferð hjá okkur eh tíman bráðlega, svo er kannski líka gaman að kikka´i bustað í sumar þá er alveg pottþétt að við komumst sem flestar??

Ég er komin í gífurlegt jóla skap og geri ekkert annað en að hlusta á jola lög herna í tölvunni ;) Svo er hún Sigrún byrjuð að skreita ;) Ég er hins vegar byrjuð að pakka niður og búin að fylla allar töskurnar mínar sem sagt 4!! Þarf að kaupa 2 til viðbótar... Þarf að pakka þessu núna niður því ég þarf að senda farangurinn heim með frakt flugi heim til klakans... og ég er svo stressuð að það gerist einhvað og að töskurnar týnist eða einvhað hehe ég er svo klikk ;)

Nú er ég hætt að bulla herna og kvittta fólk mér finnst þið ekki dugleg.. lika þeir að kvitta sem ég þekki ekki og eru að skoða bloggið mitt :):) Hlakka til að koma heim see ya pipól really soon ;) Love ya :)


» 14 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 17:12:30 / annathora

ÓGEÐSLEGA LEIÐINLEGAR GELLUR HÉRNA!!

Loforð er víst loforð og ég var búin að lofa að koma með eitt stykki færslu eftir helgina... og já hvað geri ég ekki fyrir ykkur :)

Föstudagurinn var rólegur, kíktum aðeins út.. forum á Marx og á Pæja, finasti staður en vorum ekki alveg að fíla okkur þarna á dansgólfinu... þannig að það var komið bara í fyrra fallinu heim og ég vaknaði snemma á laugardeginum.. Ég fór með fjölsk. að skoða nýja húsið þeirra.. svo var förinni haldið á markaðinn sem ég sagði ykkur frá í seinustu færslu og þar keypti skvísan sér lakkgrís og annað gotterí ;)

Hvar á ég að byrja.... ja hérna já! Jú á laugardagskvöldið byrjuðum ég og Berglind á því að kíkja í pool með Fred og Elvis, ég og Berglind vorum ekki að standa okkur og erum við þrælar í viku, eða þannig hljóðaði veðmálið... Þegar kl, var að ganga hálf 2 keyrðum ég og Berglind svo niður á Mukó Múkó til að tjútta af okkur rassinn ;) Kvöldið á Mukó byrjaði bara vel og vorum við sko í DANS FÍLINGNUM ;) Aðeins seinna bættust svo hún María og Krístín í hópinn ;) Við vorum bara að skemmta okkur ansi vel þangað til að ég fæ sígarettu í höndina og það vita allir sem hafa lent í því að það er ekki það besta og þetta var frekar mikið :evil: Nú jæja ég kinkaði til stelpunar um að hún hafi gert þetta við mig og hún bara yfti öxlum eins og það skipti ekki neinu máli... jú ég var náttla alveg pínu reið og sagði einhvað við hana en hún skildi ekki stakkt orð í ensku þannig að Berglind fór einhvað að reyna segja við hana líka.. Nei nei haldi þið ekki bara að gellan hafi orðið klikk og byrjaði að íbba einhvað gogg við Berglindi svo kemur hún að mér og gríbur í hendina á mér þar sem brunasárið er og reynir að segja einhvað en ég var svo pirruð að ég ýtti henni burtu.. svo fórum við bara að dansa við peru skvísurnar en vorum annað slagið að gefa brunavarginum illt auga en hún þorði varla að horfa á okkur.. en hvað gerir hún svo jú jú hún labbar í átt til okkar fer að dansa labbar til baka og með hælinn í ristinna á berglindi, gott fótbolta trikk by the way ef þú þolir ekki andstæðinginn.... en í leik á móti Þorlákshöfn lét ég ekki duga að gera eh svona traðka á ristum heldur var ég send útaf fyrir að bregaðst einum of harkalega við... þeir sem þekkja mig vita hvað ég meina hehehehehe;) En já smá útúrsnúningur!! Allavega þá traðkar gellan á Berglindi og labbar í búrtu, við vorum pínu hissa á gellunni og gáfum henni enn og aftur illt auga en hún lét sig hverfa.. þannig að við héldum áfram að dansa! Seinna um kvöldið færðum við okkur svo í hinn endan á Múkó þar sem öðrvísi tónlist er spiluð.. haldiði þá ekki að brunavargurinn se komin með vinkonu til að dansa við, Berglind er komin í glas og er að dansa frekar nálægt þeim hehehe en svo kemur hún aftur til okkar að dansa og erum við bara í gúddý að dansa rosa gaman ;) Svo fara María og Kristín heim og ´þá byrjar ballið!!!! Brunarvargurinn og vinkonan koma til okkar og byrja að dansa utan í okkur og við ýttum þeim í burtu.. fyrst hlóu þær bara og heldu áfram en svo urðum við frekar pirraðar og ÝTTUM þeim í burtu og já vinkonan varð KLIKK og byrjaði að rífa í hárið á Berglindi... ég vissi að það væri ekki sniðugt að fara slást einhvað þarna þar sem að þær voru með vinum sinum þarna og þeir voru GAURARA 8| þannig að ég dróg Berglindi í burtu og hehe það voru allir að horfa á okkur og það komu meira segja einhverjir gaurar til að stoppa ef það skyldi verða bitch fight hehe ;) En allavega við héldum áfram að dansa og ákváðum að taka rölt fram hjá þeim sem við og gerðum... sem endaði þannig að þær voru byrjaðar að rífast eins og ég veit ekki hvað við okkur á FRÖNSKU og við skildum ekki baun.. skyldi bara að þær sögðu okkur að drulla okkur héðan út og sögðu svo bye við okkur! Jæja við hlóum bara af þeim og fórum aftur að dansa.... Við dönsuðum like crazy og allur salurinn var að dansa með okkur ég er ekki að grínast sko!! þannig að þær settust niður og horfðu á okkur bara og svo ákváðu þær að hypja sig heim.... við bara vinkuðum þeim bless og þær gáfu okkur puttann ;) ROSA GAMAN :) En eftir þetta dönsuðum við eins og crazy gellur og það var svo ógeðslega gaman að bara VÁ :):):):)

Svo lentum ég og Berglind aftur í skemmtilegu í dag... vorum í HM og Berglind var að fara borga þannig að við stóðum í röðinni þegar svona um 45-50 ára kona kemur og stendur hliðin á Berglindi... við bara okey róleg að ryðjast fram fyrir alla... svo vorum við nr. 2 í röðinni þegar Berglind segjir við kjelluna afsakaðu ég var hérna og ég er næst!!! Hún horfir á Berglindi og segjir einhvað á frönsku... svo kemur að okkur heyrðu haldiði ekki að kellinginn ýtti okkur ekki bara halfpartinn í burtu og skellir fötunum á afgreiðsluborðið...!!!!! HVAÐ ER AÐ FÓLKI??? Berglind náttla nett pirruð og blótar henni í sand og ösku meðan það er verið að afgreiða hana!! Berglind var meira segja það pirruð að hún reyndi að ýta henni þegar hún labbaði frá afgreiðsluborðinu hahhaha :)

En ja það er greinilega bara PIRRAÐ OG LEIÐINLEGT fólk hérna.... við komumst að því núna um helgina... þannig að ef einhver fer að vera einhvað leiðinlegur við okkur meira held ég að þá verði bitch fight hahahha ;)

Þurfti bara að láta reiði mína bitna hérna og ef þið komið til lúx PASSIÐ ykkur þá á gellunum hérna þær eru KLIKK KLIKK KLIKK!!!!! Takk fyrir mig og ég vona að þið hafið átt skemmitlega helgi án ofbeldis og pirrings hehe ;) Love you people hlakka til að koma heim og hitta ykkur öll ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 11:46:35 / annathora

Það styttist alltaf í heimkomuna ;)

Komin tími á nýja færslu hérna hjá mér... Er ekki búin að gera neitt rosalega mikið nema vera með börnunum mínum þessa vikuna... Sigrún kom heim frá Íslandinu góða í gær og haldiði ekki að hún hafi gefið mér bláan, geggjað flottann ipod og audda var mín ekkert smá ánægð þar sem ég er búin að vera deyja því mig langaði svo mikið í eitt stykki svoleiðis ;);););););) Þannig að núna er ég einn af mörgun stolltum eigendum ipods hehe ;)

Vikan var bara fljót að líða og dunduðum ég og krakkarnir okkur einhvað með Berglindi og hennar krökkum þar sem að hún var líka að passa! Á sunnudeginum keyrðum við til Þýskalands í Babalúba hehe sem er svona hoppukastala dæmi, það komust allir óskaddaðir heim úr þeirri ferð nema ég!! Berglind var í einhverjum drápshugleiðingum og ÉG var fórnalambið ásamt einhverju saklausu barni! En já hún Berglind byrjaði á því að kremja barnið næstum því þegar hún fær þá skemmtilegu flugu í höfuðið að fleygja sér bara allt í einu á svona uppblásið hoppudót sem að helling af krökkum voru að leika sér á.. sem að endaði þannig að næstum allir krakkarnir veltu af og lítil stelpa varð næstum undir skessunni henni Berglindi hehehe ;) Svo var ég bara í sakleysi mínu að leika mér á svona stórum bolta.. sat á  honum og var að hoppa þegar litla dyrið kemur og sparkar undan mér boltanum og ég SPLASSSS á golfið, fékk ábyggilega heilahristing thanks to Berglind hehehe :klikk:

1 des er á mogrun sem þýðir það að mar fer að fara láta jóla geisló í tækið eða kannski mar láti bara einhvað af jólalögum á nýja ipodinn sinn :D Þannig að fílingurinn fari nú að koma... hlakka líka rosa til að fara sjá allt skreitt hérna... Svo kíkir mar kannski á jólamarkaðinn í Tríer, en hún María mín kíkti þangað um helgina þar sem að hún fékk fjölskylduna sína í heimsókn frá klakanum og sagði að það væri rosa fallegt að sjá skreitingarnar og allt það, þannig ég verð að gera mér ferð inn í Tríer til að tjekka á þessu :) Ætli mar taki ekki líka eitt stykki HM ferð þar hehehehe bara svona svo ég örugglega fylli út í ferðatöskurnar, sem að minnir mig á það ég þarf að fara kaupa mér töskur :S

1 des þýðir líka það að það eru 19 dagar  heim... alveg rosalega er mér farið að  hlakka til að koma heim til ykkar :) Alveg ótrúlegt að ég sé búin að vera í næstum ár í burtu!!!

Um helgina er svo jólabasar hérna í Lúx, þá eru hinar ýmsu þjóðir að selja alls konar hluti frá sínu landi! Og auðvitað eru íslendingar með eitt stykki bás þannig að ég ætla að fara og kaupa mér smá íslenskt nammi :):) Hlakka rosa til að geta farið út´i búð heima og keypt mér íslenskt nammi, kókómjólk, langlokurist og já ef ég hætti ekki núna kemur bara einhver langur listi, þannig ég hlakka sem sagt bara til að koma og borða íslenskan mat :)

Við perur erum að spá í að kíkja aðeins út á djammið um helgina, vorum lika einhvað að spá í að hittast heima hjá Völu og spila og hafa það gaman ;) Þannig ég segji ykkur frá helginni í næstu bloggfærslu.. ;)

Love u... hlakka til að sjá ykkur öll :):):) Skvísan er over and out og verið nú dugleg að kvitta því annars verður engin næsta bloggfærsla hehehehe ;) see ya all soon ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 19:26:00 / annathora

25 dagar og ég komin heim!! :) :(

 Nú fer þessu árs ævintýri mínu brátt að ljúka og einhvað annað spennandi tekur við... það er bæði kominn svakalegur spenningur í að koma heim og hitta alla og líka kvíði fyrir því að fara frá öllum héðan í Lúx :S En dvölin mín hérna úti er búin að vera hreinlega stórkostleg, enda sé ég ekki eftir því að hafa komið hingað og eytt þessu ári í Lúxemborg þótt svo að ég vissi ekki baun út í hvað ég var að fara fyrir sirka ári síðan, enda man ég eftir því að síðasta nóttin mín í naflanum var hálf ógnvekjandi og óskaði ég þess að henni myndi hreinlega bara ekki ljúka, ferðin á Leifstöð hefur heldur aldrei verið eins fljót að liða og þegar mamma og pabba skutluðu mér þangað, en að kveðja var ekki eins erfitt og ég bjóst við þar sem ég var svo heppin að vera samferða henni Heiddu minni út, hún bjargaði þessu ferðalagi algjörlega ;)

Ég er búin að sjá ótrúlega mikið og ferðast til þó nokkuð margra landa á þessu ári mínu hérna sem er náttúrulega bara snilld þar sem ég dýrka fátt meira en að ferðast :) Búin að kynnast alveg ótrúlega skemmtilegu fólki og við perur búnar að bralla mikið saman ;) Og vona ég að við náum nú allar að halda góðum peru tengslum þrátt fyrir langt á milli ;)

 Nú eru 25 dagar í heimför og sirka mánuður í jól, að hugsa sér..! Ég er ekki komin í mikið jolaskap þótt svo að ég sé byrjuð á því að versla jólagjafirnar, mar þarf að fara láta jóla geisló í tækið og þá hlýtur fílingurnn að koma ;)

En jæja ég er ein heima þessa helgina með börnin mín... og ætlum við að bralla einhvað skemmtilegt á morgun saman :)

Við perur kíktum aðeins út á miðvikudaginn og fengum okkur kakó og kíktum í miðbæinn... og hvað haldið þið að við perum höfum lent í??? haha jú jú viðtali og myndatöku... mar er að fara ná heimsfrægð 8) En jú það voru einhverjir menn frá Þýskalandi að taka viðtal við okkur og spurja um djammið í lúxemborg, framtíðarplön og fl. sem að tengist okkur... Ég náði ekki alveg akkuru þeir voru að þessu en það á að birta þetta viðtal í einhverju blaði ásamt mynd af okkur... Þeir ætluðu svo að senda okkur viðtalið og myndirnar ef við skyldum vilja breyta einhverju fyrir birtingu ;) hehe er að segja ykkur það perur lenda í öllum skrattanum :klikk:

Í gær kíktum ég og Berglind svo í bíó á nýjum Bond myndina... og hún er bara geggjað góð sko, í fyrstu var ég ekki alveg sátt með nýja Bondinn en kallinn stendur sig sko bara þvílíkt vel.. þannig að þumallinn upp hjá mér við þessari mynd ;)

 Kveð að sinni ;) og verið nú dugleg að kvítta hja mér annars nenni´ég þessu ekki ;) Over and out Anna lúx pera ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 17:11:49 / annathora

Vín á enda ;)

 

ARGG hvað er í gangi var næstum búin að skrifa heila færslu hérna og bara PUFF GONE...! Jerimías og gullskor....:evil:

En já það er allavega kominn tími á færslu hérna hjá lúxskvísunni... þótt svo að það hafi ekkert ýkja mikið skeð síðan ég bloggaði síðast, allavega var ég ekki í landi lúxins yfir helgina.. mín var í Vín sem er nánar tiltekið (fyrir þá sem eru lélegir í landafræði) í Austurríki ;)

Við lentum í seinna fallinu á föstudeginum og komin upp á hótel rétt eftir kvöldmatartíma.. Mar var ekkert að labba inn á neitt venjulegt hótel skal ég segja ykkur heldur hótel sem er talið vera eitt af því flottasta í Vín eða ef ekki það flottasta! Þannig um kvöldið lét mín bara renna í froðu bað þegar allir voru sofnaðir... ég lá sem sagt í baði á giltu baðherbergi á Lúxus hóteli í Vín og hlustaði á I podinn hans bjössa :) Frekar nice... daginn eftir frétti ég það að ég var ekkert sú eina sem að fékk þessa hugdettu, það voru aðrar perur sem lögðust í baðið á sínu gilta baðherbergi ;)

Jæja laugardagurinn var bara rosa fínn en ég, Berglind og Tóta röltum bara um miðbæinn með þá stuttu... og ekki að spyrja af því freistingarnar voru alltof margar og við urðum að kíkja í búðir og aha við versluðum en bara smá :) Alla vega þá mæli ég með Vín.. rosalega falleg og sjarmerandi borg, og byggingarnar þarna eru bara rosalega fallegar ;)

Sunnudagurinn var tekinn snemma því að allir áttu að vera komnir upp í rútu fyrir hádegi sem að keyrðu okkur svo í flugvélarnar sem að byðu okkar... jaja KB er bara the bankinn hann bara leigði 2 flugvélar og 3 hæðir á einhverju rugl flottu hóteli fyrir starfsmenn sina, maka og börn... já já gaman að sjá reikninginn eftir þessa árshátið þar sem allt var í boði KB...
Við létum samt ekki flugvéla þreytu stoppa okkur á sunnudeginum... Hún Kristín var með 2 vinkonur sínar frá klakanum í heimsókn og spurði okkur hvort við vildum borða með þeim á picco og fara svo í keilu svo að það yrði nú einhvað gert seinasta kvöldið þeirra.. jú jú audda vorum við til í það ;) Keilan var svo helvíti skemmtileg en jú ég vann ekki að spurja að því, veit samt ekkert sko hvort að stelpurnar hafi vitað af því að í fyrstu umferðinni vann hann sem að var með færst stig sem að segjir manni bara eitt AÐ ÉG var sigurvegarinn :haha:
Svo var lika tekin önnur umferð og sú sem að tapaði þar vann sko ekki því þá voru breyttar reglur sko.. þannig að ég var í 2 eða 3 sæti þar.. hvað get ég sagt mar getur ekki alltaf verið sigurvegari hahahahah :)
En já æj ég er komin í bullið hérna sko.... helgin er pössun bara því Sigrun þarf að fara til Íslands og Bjössi til London þannig að það verður bara tekið því rólega með krökkunum mínum :) Svo erum við peruru að spá i DJAMMI fyrstu helgina í des  jibbi ógó gaman hjá okkur ;) En já fólk þið vorum bara ágætlega duglegt að kommenta seinast þannig að ekki slá slöku við... ;)
Love ya pipól og kommentið nú ;)

» 11 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 15:38:18 / annathora

Alltaf að versla, stjönumerkin í rúminu ;)

Kominn tími á nýja færslu hérna hjá lúxskvísunni... Hefur reyndar ekki mikið skeð síðan ég kom heim frá Alicane... Spánarbrúnkan er einhvað farin að segja til sín.. eða er sem sagt horfin.... Þar sem að veðrið hérna í lúx er frekar tilbreytingarlaust... RIGNING OG KALT :evil:

Þótt svo að við stöllur tókum djamm á Alicante í tilefni tvítugs afmælis Berglindar ákváðum við að taka annað djamm með hinum perunum :lol: Ég, Berglind, María, Tóta og Sigga skelltum okkur á Chis chis og fengum okkur mexíkóskan mat, og hann náttla bregst ekki ;) Eftir það var förinni heitir á Marx bar og fyrir þá hörðustu var svo Mukó mukó endastöð þess kvölds ;) Það eru komnar myndir inn af kvöldinu fyrir þá sem vilja sjá ;)

Á fimmtudeginum fór ég, Berglind og Fred í bíó á Borat og jisús þvílíkur húmór.. myndin var frekar spes en hún var mjög fyndin og ég mæli alveg með henni ;)

Þessi helgi var róleg og vorum ég og Eygló bara einar í kotinu.. ég og Berglind náðum að versla soldið á föstudaginn.

Þegar ég kom heim fór ég að laga aðeins til í skápnum mínum og er búin að pakka öllum sumarfötunum mínum niðu í eina tösku.... og það er alveg meira en nóg eftir 8|... það verður svakalegt að þurfa að koma öllu þessu heim og ég er hálfpartinn farin að kvíða fyrir því að koma þessu niður í töskur.. þarf reyndar að fara kaupa ferðatöskur og svo bara senda allt draslið heim á klakan með Frakt flugi...! Er reyndar ekkert að spara mér verkið þar sem ég og Berglind vorum að versla pínu áðan lika :S En í þeim poka var nú ein sæt jólagjöf handa henni elskulegu móður minni ;) Er bara dugleg og byrjuð á jólapakka stússinu :) Einhverjir fleiri sem vilja sætan jólapakka hehe? :) Held ég sé samt ekkert sú eina sem að glímir við verslunar síki sko... hringdi í hann pabba í gær og hann sagði mér það að mamma væri á fullu að strauja kortið hans í búðunum á Barcelona hehehe :)

Perur eru búnar að ákveða bíó hitting í kvöld ;) Ætlum að fara sjá The Devil Wears Prada eða Flags of our fathers.. :) Hvað verður fyrir valinu veit ég ekki ;)

Næstu helgi verð ég svo staðsett í Vín... Það er KB árshátíð ;) Erum á flottasta hótelinu í Vín og það er víst bara einhvað mergjað....! Verður gaman að sjá ;) En já veit ekki hvað ég á að bulla meira.... en næstu helgi er akkurat mánuður í heimför JISÚS kræstur þetta líður alveg ótrúlega hratt og ég verð komin heim áður en ég veit af..... :)

Nú er skilda að kommenta á síðuna mína ef u lest þennan texta takk fyrir  hehehhehe ;) Ég blogga ekki meira ef að fólk er ekki duglegt..... :haha: Merci 4 me... skvísan er over and out ;) En tjékkið á því hvernig þig eruð í rúmínu.. listi hérna fyrir neðan ;)

Luv ya pípól ;)

Vatnsberi(20.jan - 18.feb) Vatnsberinn þarf fyrst og fremst þolinmóðan, skilingsríkan og hlýjan bólfélaga. Rúmið þarf að uppfylla væntingar hans svo hann fái notið sín. - Hræðist náin kynni. - Feiminn en auðmjúkur - Hann er yfirleitt feiminn - Svolítið tilbaka í persónulegum samskiptum - Fæstir komast í gegnum skelina og kynnast honum náið - Hógværð hans er heillandi í rúminu - Á erfitt með að vera opinnn og óheftur í rúminu - Laðar að sér fólk sem hann þráir, slík er hugarorka vatnsberans - Vill deila miklum tíma með elskhuga sínum í rúminu - Getur verið allt með elskhuga sínum; jafningi, ástmaður, kennari, einlægur vinur og bólfélagi

Fiskur(19.feb - 20.mars) Fiskurinn er stórkostlegur elskhugi svo lengi sem honum finnst hann vera verndaður tilfinningalega og elskaður alla leið. Vandræðin hljótast eingöngu ef fiskurinn elskar sjálfan sig ekki nóg. - Dularfullur, fallegur, rómantískur í rúminu - Oft flæktur í eigin tilfinningar og nær því ekki að einbeita sér nóg - Á það til að forðast velgengni og eyðir lifi sínu í dagdrauma. - Gæddur mjúkum, rafmögnuðum ákafa eins og nýtur þess að kúra - Nýtur þess að láta drottna yfir sér (í rúminu) en stefnir um leið að því að hafa stjórn - Vill að kynlífið sé skemmtilegt, margslungið og tilbreytingaríkt - Kynlífið er könnunarferð í huga fisksins - Hann leitar að sameiningu ástar og kynlífs með elskhuga sínum - Leitar eftir samböndum sem fylla hann von og ást - Hann heldur tryggð við konuna sem hann fellur fyrir                         

 Hrútur(21.mars - 19.apríl) Hrúturinn nálgast kynlífið eins og allt annað í lífinu: hvatvís og kappsfullur. Hann er opinn fyrir öllu en elskhugi hans ætti ekki að spyrja hann um morgundaginn því hann er ekki fyrir kynferðislega einokun. - Sængurver úr silki eða satín eflir hvatir hrútsins - Rómantískur, ástríðufullur, kynferðislegur og lostafullur - Kröfuharður og fyrir honum er rúmið orustuvöllur nánast - Elskhugi hrútsins þarf að þola sálrænt ástand og geta sætt sig við þá orku sem fylgir reiði og ákveðni og ekki síður orku ástarinnar - Líkar vel að skreyta rúmið með óteljandi púðum - Næmur, heiðarlegur og hefur óbeit á uppgerð í rúminu - Þolir ekki að láta sér leiðast - Hann er hvetjandi og drífandi. - Hann tilheyrir eldmerki: trygglyndur og örlátur á atlot og strokur - Hann þarfnast félaga sem er jafn ákveðinn og hann í rúminu 

    Krabbi(22.júní - 22.júlí) Krabbinn er feiminn en hefur ríka kynhvöt.Kynlíf er krabbanum kjarni lífsins og tal hans, lykt, matargerð og bros geisla af kynþokka - Hart rúm stuðar krabbann nánast - Vill sökkva með elskhuga sínum inn í nóttina áhyggjulaus og frjáls - Næmur á fólk og umhverfið og kýs þess vegna snyrtilegt mjúkt rúm - Næmi og innsæi hans eru slík að hann er mjög viðkvæmur fyrir rúminu - Allra manna þolinmóðastur í rúminu - Ástarvef sinn vefur krabbinn fínlega og dramatískt í rúminu - Púðar skipta engu máli heldur þarf rúmið að vera hreint og fallega búið - Flekandi og föðurlegur í samskiptum við elskhuga sína - Leitast við að prófa sig áfram í rúminu 

  Ljón(23.júlí - 22.ágúst) Stærsta vandamál ljónsins er óraunhæfar væntingar í rúminu. Það vill hart stórt rúm og kýs helst að sofa,lesa,elskast og borða í rúminu allan sólahringinn. - Geislar af sjálfsöryggi og reisn í rúminu (sjálfsöryggið ómótstæðilegt). - Getur verið ákaflega kröfuhart við elskhuga sinn og jafn örlátt - Svo fremi sem því finnst það vera elskað eða eftirsótt þá er það nokkuð öruggt í rúminu - Þegar það er ástfangið reynir það í sífellu að sigrast á tregðu sinni til að leggja eitthvað á sig fyrir aðra - Kýs tvær sængur því það gefur ekkert eftir í svefni og vill helst hafa sængina milli læranna - Ljónið þarf ástvin sem skilur eigin væntingar varðandi athafnir í rúminu svo hann geti aðstoða það við að verða meðvitað um sínar - Elskhugi ljónsins þarf að búa yfir óbugandi þolinmæði í rúminu - Auðmýkt ekki til í ljóninu - Með skjalli er hægt að láta það gera hvað sem er í rúminu

 Naut (20.apríl - 20.maí) Nautið þarf þægilegt rúm og elskhuga sem endurspeglar styrk þess og tilfinningalegan stöðugleika í rúminu. - Ímyndunarafl er óþarft ef nautið er ánægt - Mjög rómantískt og viðkvæmt - Blítt, fálátt og feimið í rúminu - Þægindi og ánægja skipta nautið miklu máli og þá eru þægilegir koddar mikilvægir - Staðfast og heimakært og kýs því þægilegt rúm sem kallar á það í hvert sinn sem það kemur heim eftir erfiðan dag - Er mjög gefandi í samskiptum við elskhuga sinn í rúminu - Það er opið til líkama, sálar og anda - Þegar því líður vel í rúminu gefur sig allt

 Tvíburar(21.maí - 21.júní) Skilmálar í rúminu er eitthvað sem tvíburinn hreinlega þolir ekki. Hann er hamingjusamastur þegar hann elskar og nær að hvílast vel. - Skemmtilegur og örvandi í rúminu - Honum verður aldrei orðavant þegar elskhugi hans nennir að kjafta alla nóttina - Mjög heillandi elskhugi og tillitssamur svo lengi sem hans helmingur(í rúminu) stendur óáreittur - Hann hefur mikið skopskyn og hnittni hans og töfrar eru á við forleik í rúminu - Þráir að vera elskaður af ákafa og veltast um rúmið ef plássið leyfir - Tvíburanum er vel við börn og þarf stórt rúm svo öll fjölskyldan geti sofið þar

   Meyja(23.ágúst - 22.sept) Meyjan verður að fá að sofa út þegar hún er þreytt til að geta blómstrað í rúminu. Kröfuharkan verður nánast engin þegar hún sefur í góðu rúmi. - Hreinleg og ástríðufull - Rómantískur og gefandi þegar ástarleikurinn hefst - Það líkist töfrabrögðum svo kynþokkafull er meyjan í svefni jafnt sem vöku - Meyjan álítur snertingu eðlilegan þátt í rúminu - Hún gerir mjög miklar kröfur og leitar alla tíð að fullkomnun í rúminu - Aðeins þrá meyju eftir ástarævintýri jafnast á við mikla forvitni hennar - Hann er innilega forvitin í rúminu - Þarf elskhuga sem vill eiga auðugt og spennandi kynlíf - Þarf elskhuga sem er frjáls til líkama og sálar - Þarf elskhuga sem er örugg með kynlífstækni sína í rúminu

 Vog(23.sept - 23.okt) Elskhugi vogar verður að vera þolinmóður og skiliningsríkur og viðurkenna þörf hennar fyrir aðdáun og blíðu í rúminu. - Þegar vogin hefur fundið ástina er ekki aftur snúið - Undanlátssöm í rúminu - Kýs að þóknast öðrum en getur líka verið ákveðin í rúminu - Leitar í sífellu að fyrirmyndar elskhuga í rúminu og þegar hún finnur hann er hún sátt að eilífu - Nákvæm og vandlát í rúminu - Henni er illa við hirðuleysi og vill því að rúmið sé snyrtilegt og vel búið um - Illa við einveru og kýs að hafa einhvern hjá sér öllum stundum upp í rúmi - Kýs ástvinu sem getur nært hana á tilfinninga- og kynferðislega sviðinu í rúminu                                                                                      

Sporðdreki(24.okt - 21.nóv) Sporðdrekinn nær taki á elskhuga sínum með persónutöfrum sínum,dýpt og þrautseigju í rúminu. - Stjórnsamur en ákaflega trygglyndur og næmari en nokkurn grunar í rúminu - Skynhneigður og ástríðufullur elskhugi - Eigingjarn og jafnvel leynilega sadískur í rúminu ef hann treystir og tengist náið elskhuga sínum - Öfgafullur, allt eða ekkert í rúminu - Afbrýðisamur ef elskhugi gefur sig ekki allan í rúminu - Þegar sporðdrekinn er ástfanginn getur hann verið kynþokkafullur með afbrigðum - Hann er fæddur til kynlífs og valda og það á einnig við í rúminu - Kröfuharður og lostafullur og kýs að hafa umhverfið á sömu nótunum (stórt og mikið rúm og silkirúmföt)

Bogmaður(22.nóv - 21.des) Bogmaðurinn er fær um að skapa skínandi stemmingu við hvaða aðstæður sem er og býr til rómantíska stund án fyrirhafnar með krafti sínum og hugsjónum. - Einlægur - Hreinn og beinn - Fyrir honum er kynlíf hátíð - Í kynlífsfélaga sínum leitar hann að félaga og samferðaelskhuga - Harðbrjósta, tilfinningalaus (ónærgætinn) - Heiðarlegur og lætur ekki bjóða sér neitt undirferli - Hann hefur mikla þörf fyrir stöðuga örvun í ástarsambandi - Hann lætur oft slag standa með ókunnugum og hefur elt margar myndarlegar manneskjur sem hann er hrifinn af á röndum(gefst ekki upp) - Sterkt fegurðarskyn hans gerir hann að stórkostlegum félaga í ástarleikjum                                    

 Steingeit(22.des - 19.jan) Kynlíf og ást eru mjög mikilvægir þættir í lífi steingeitar en þeir fullnægja aldrei þörf hennar fyrir veraldlega viðurkenningu í rúminu - Kynlífsglatt stjörnumerki - Steingeitin er raunsæ og rómantísk í rúminu - Kýs hæfileikaríkan elskhuga með sterkt ímyndunarafl - Stekkur aldrei inn í ný sambönd án langs undirbúnings - Þegar steingeitin elskar loksins, elskar hún ákaft og af öllu hjarta - Auðsærð í rúminu - Er sjálfri sér næg í rúminu en leitar samt verndar sem hún finnur í góðu sambandi þar sem jafnvægi ríkir - Þarf ást en óttast um leið sársaukann sem hún kann að valda - Kynþokki hennar vex með aldrinum og sömuleiðis leikirnir sem fram fara í rúminu - Gott úthald í rúminu


» 15 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 19:00:36 / annathora

Komin heim frá Alicante ;)

Hefði nú átt að gorta mig aðeins meira með sumarylinn og sólina á Alicante í síðustu færslu, hefði allavega getað gert sjö níu þrettán eftir að hafa skriað þetta... þar sem við eyddum seinustu dögunum okkar þarna i rigningu og skíta veðri.. samt ábyggilega ekki jafn slæmt á cantium eins og á klakanum býst ég við þar sem að það var bara einhvað ofsaveður þar....8| Myndirnar úr Alicante eru akkurat í þessu að hlaðast inn á netið þannig að þú.. kæri lesandi getur skoðað myndirnar mínar ;)

Perur eru alveg ótrúlegt fyrirbæri.. Við lendum í öllum skrattanum :klikk: Eing og ég sagði ykkur frá í síðustu færslu týndumst ég og Berglind á Alicante.. ekki beint skemmtilegasta en við lifðum þetta af ;) Jú jú við lentum auðvitað í fleiru skemmtilegu eða frekar svona ekki skemmtilegu... hehe ;) Me og Begga ætluðum sko helduru betur að fara versla einn daginn þarna á Spáni.. jú jú náðum alveg að versla slatta sko, sérstaklega Berglind hehehe en já ekki nóg með það.. þegar við ætluðum okkur að fara aftur upp á hótel var nákvæmlega ENGINN taxi og demba úti 8| Við lentum í þvíliku barsli því að það nennti enginn að hjálpa okkur og bara skellt á mig á leigubílastoðinni því að það skyldi mig enginn.... :$ Já mín pínu reið bara sko hehe og hringdi og hringdi aftur en án árangurs þar sem þessir spánverjar kunna ekki stakkt orð í ensku máli...! Nú jæja vorum farnar að orvænta smá þarna úti í rigningunni og búnar að eyða ansi longum tíma í að reyna finna taxa en án árangurs þannig að ég hringdi aftur í leigubílastoðinna til að tjekka hvort að það væri örugglega enginn sem að talaði ensku..... en NEI þannig ég og Berglind hlupum í allar áttir til að finna einhvern enskumælandi á svæðinu sem gæti hugsanlega hringt fyrir okkur og pantað taxa, til allrar hamingju hittum við einn sem að talaði mjög bjagaða ensku en var þó nóg til að hringja á taxa fyrir okkur ;) Strákurinn fylgdi okkur þar sem að leigubíllinn myndi stoppa eftir sirka 10 min og kvaddi okkur svo... við byðum en nei nei enginn taxi.. nokkrum mínutum síðar kemur strákurinn til okkar til að tilkynna okkur það að taxinn væri bara ekkert að koma, þeir frá miðstoðinni hofðu sem sagt hringd í hann til að segja honum það að það væri enginn taxi laus og þeir myndu ekki koma til þess að ná í okkur :evil: Nú jæja við vorum búnar að hanga þarna nógu anskoti lengi.. fyrirgefið orðbragðið og Annan orðin pirruð þannig við ákváðum bara að labba EINHVERT og vorum ekki mjög vongóðar að finna einhvern taxa þar sem við vorum í Gettói Alicante eða eh álika hehehe ;) En eftir ekki það langa göngu urðum við svo heppnar að sjá taxa koma út úr bílageymslu.. við hlupum að  honum SORRY SORRY SORRY ARE U FREE og til allra hamingju kinkaði bílstjórinn, Þannig að við komumst  heilar á húfi upp á hótel ;) 

Eins og þið vitið áttið Berglind tvítugs afmæli út á Alicante og svo var reyndar hann faðir minn 41 árs þann 3 okt :) Til hamingju með það elsku pabbi og elsku Berglind mín :) En já auðvitað urðum við skvísur að taka djamm :) Eins og ég sagði eru perur heppnar og vorum bara barir þarna með spænskri tónlist:evil: ekki beint það skemmtilegasta en jæja.. okkur var svo bent á einn bar þar sem að tónlist af okkar smekk var spiluð og við þangað audda :) Jæja haldi þið ekki að við höfum bara labbað inn í Gettó Alicante aftur hehehe og ekki nóg með það þá var tónlistin spiluð það lágt að mar gat talað saman án nokkurs HA!!!!!!!.. frekar fyndið því að það voru allir í dansfílingnum á dansgólfinu hehe :) En já annars var þetta bara frekar fyndið kvöld, takk fyrir það Berglind mín ;)

HMM hvað meira get ég sagt ykkur sem fór úrskeiðis hjá okkur stöllum.. jú jú haldi þið ekki að Berglind hafi næstum því orðið strandaglópur á Alicante.... 8|  Á flugvöllin var að minnsta kosti klukkutíma bílferð, við vorum öll komin upp í taxa og lögð af stað þegar ég fer einhvað að pæla í passportinu mínu og ég verð bara að segja það ég hef ekki hugmynd afhverju en ég fer allavega einhvað að tala um það þegar Berglind áttar sig á því að hún er ekki með sitt..........!!!! Hún fær hálfgert áfall og byður taxann að snúa við undir eins og fara aftur upp á hotel, gaurinn gefur hinum töxunum merki um að stoppa og við snúum við.. og viti menn passinn var á hótelinu ;) En til allra hamingju vorum við ekki komnar upp á flugvöll þegar þetta fattaðist... og thank god að ég tala stundum um einhverja óþarfa hluti því í þetta skipti kom það sér sko heldur betur vel ;)

Jæja heimkoman í lúx var kannski ekki alveg eins notaleg og ég hélt hún yrði.. Því við komum heim í frystikistu..... Nákvmælega ekkert rennsli á ofnum og ekkert heitt vatn! Nóttinn var köld eins og gefur að skilja. Hann Róbert litli svaf í flísgalla og hinir meðlimir fjölskildunar í fötum... Þegar mín kom fram í morgun var hún Sigrún búin að kveikja á einum ÞRJÁTÍU kertum til að reyna hita aðeins... en ja dagurinn í dag var kaldur og við tippluðum herna um i skom, flís og ullarpeysum ;)

Næsta helgin verður held ég bara tekin róega og kannski einhvað smá djamm.. hvað segjið þið um það perur?? Svo fer ég, Berglind og fjölskyldan til Vínar helgina eftir það því að það er árshátíð hjá KB banka ;) Já en veit ekki alveg hvað ég að að segja meira hérna.... Nema það styttist alltaf í heimferð og mér er farið að hlakka til að koma heim í snjóinn ;) En jæja þetta er orðin ágætis færsla hjá mér í bili... Og jæja nú eiga allir að kvitta þetta gengur bara ekki sko ;)

Og já Rósa við fórum í skemmtigarðinn hjá Benedorm og ja hann er KLIKK en við komumst ekki næstum því í öll tækin því við vorum náttla með smáar hnátur með okkur, en ef ég fer einhvern tíman aftur þarna þá er þessi garður málið sko... svakalegur rússíbanininn þarna hehe ;)

Bæjó elskurnar love ya, over and out Anna ;)


» 15 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 22:15:35 / annathora

Í sól og sumaryl á Alicante

Þá er mín komin til Spánar í sumarylinn og sólina, ekki amarlegt það ha ;) Mín er frekar brunninn á nefinu eftir strandarferðirnar tvær sem ég og Berglind erum búnar að fara í með krakkana ;) Ég og Berglind stóðumst árskorun í dag hjá fjölskyldunum okkar og stukkum ofan í sundlaugina á hótelinu okkar sem er nánast við frostmark... en við stóðumst og var pantaður nudd tími fyirir gellurnar ;) á slæginum 4 á morgun liggjum ég og Berglind nánast naktar í sælu vímu á nudd bekk ;) Veðrið leikur sko aldeilis við okkur hérna á Alicante sem er náttla bara frábært og smá tilbreyting því það er búið að vera rigning og svona já frekar kalt í lux landinu, samt kannski ekki alveg jafn kalt og á klakanum... þar sem að það er byrjað að snjóa þar :$ Þannig að það er nú eins gott fyrir mann að njóta blíðunnar sem maður er í hérna á Spáni því brátt verður maður lentur á klakan í snjóinn.. en ég hlakka samt alveg rosalega til að koma heim til allra, verður samt pínu skrítið þar sem mar hefur ekki komið heim í rúmt ár.. 8| En samt gaman því ég er farin að sakna allra rosalega mikið....:$ Planið á morgun er bara að taka því létt og sóla sig ;) Kannski me and Berglind gerum einhvað sniðugt eftir nudd tímann okkar ;) Svo voru fjölskyldurnar einhvað að spá í skemmtigarði sem er staðsettur á Benedorm, aldrei að vita að maður fari þangað, eða ég vona það nú ;) Síðasta helgi var förinni heitið til Þýskalands í skemmtigarð sem var alveg ótrúlega gaman.. :) Me and Berglind fórum sko i öll tæinn..þótt svo að það hafi verið María og Fred sem að drógu okkur í þau hehe ;) En við entumst í nákvæmlega 10 klukkustundir í garðinum hehe, það var sko tekið á því ;) Eftir það var svo keyrt til Köln til að leita að hóteli, en like always gekk planið ekki alveg eins og planað var því að það var einhvað svaka festival í Köln þessa helgina og ÖLL hótel bókuð, við erum að tala um ÖLL :evil: Nú jæja eftir tveggja tíma hótel leit ákváðum við að keyra að flugvellinum í Köln í leit að næturgistingu þar, sem heppnaðist ;) Daginn eftir keyrðum við svo aftur inn í Köln til að skoða okkur um, fóum og skoðuðm kikjuna í Köln sem er bara hevý flott..! Við vorum meira segja það nett á því að við fórum upp í turn sem tok 30 min að fara upp og niður, alls voru þetta 1018 þrep ef mig minnir rétt ;) Berglind sæta verður tvítug á laugardaginn og vona ég að við komumst á einhvað gott djamm til að halda upp á það ;) Þarf svo að fara vera dugleg að taka myndir hérna úti á Alicante.. held ég sé búin að taka eina mynd hehe ;) En já verð að deila með ykkur herna fyrsta kvöldinu mínu og Berglindar hérna á Spáni..! Við gellur tókum okkur smá göngutúr.. ætluðum bara að tjekka á ströndinni svo að allt væri á hreinu fyriri strandferðina með krökkunum.. Það endaði ekki betur en svo að við löbbuðum og löbbuðum í sirka 2 og halfan klukkutíma.. við spurðum svo til vegar þegar við vorum 100 á því að við værum bara ALVEG LOST..! en nei nei það talar næstum enginn ensku hérna:evil: Við vorum orðnar pínu hræddar því að við vorum ekki búnar að sjá neitt í sirka 2 tíma, ekki taxi, ekki ensku mælandi fólk NOTHING..!En jæja Berglind kom með uppástungu að fara upp í einhverja skuggalega hliðargötu, sem við og gerðum, og til allrar hamingju rákumst við á ensku mælandi hjón sem að sátu á svona logal pub.. þau voru svo elskuleg að láta barþjóninn hringja á taxi fyrir okkur því að það voru 5 km á hótelið okkar, þannig að jámm við vorum sko búnar að labba einhverja KÍLÓMETRA í öfuga átt og einhvað meira ein bara 5!!!! og bara no way að við hefðum ratað eða getað labbað meira... En já þetta var sem sagt fyrsta kvöldið okkar hérna úti, afar skemmtilegt.. ;) Erum allavega búnar að prófa villast á spáni, sem er alls ekkert það spennandi get ég sagt ykkur, mæli ekki með því ;) En jæja kem með eh sjóðheita færslu héðan af spáni næstu daga ;) See ya cuties sakna ykkar allra. Og bannað að skoða þetta án þess að kvitta, takk fyrir ;) Over and out Anna ;)

» 10 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 12:44:02 / annathora

Tíminn svo fljótur að líða hérna...!

Gúdden dag aller sammen ;) Vikan er búin að vera fljót að líða like always.. í dag eru akkurat 2 mánuðir í heimkomu 8| UFF hvað þetta er ótrúlegt, búin að vera í burtu í 10 mánuði og þetta er búið að liða svo ótrúlega hratt...! Það verður skrítið að koma aftur heim á klakan en einnig spennandi að fara gera einhvað nýtt :) Er búin að ákveða að fara í borg óttans að vinna fyrir mér og hefja nám svo um hautið.... hvaða nám veður svo fyrir valinu er ég bara ekki alveg orðin viss á 8|

Þegar ég kem heim bíður mín svo nýr fjölskyldumeðlimur eins og ég tilkynnti í siðustu blogg færslu.... hann sæti Neró minn ;) Fyrir þá sem vilja sá sætalíus er mynd af honum  hérna :) AHA nokkuð sætur ekki satt??

Vikan er bara búin að vera róleg, tekið nett djamm á Laugardaginn.. en áður en við fórum á djammið vöknuðum ég, Begrlind, María og Kristín snemma til þess að keyra til Frakklands til þess að versla í  outlettunum, ekki gekk það nú eins var planað var því að við viltumst á hraðbrautum Frakklands eins og okkur hefði verið borgað fyrir það og allir nett pirraðir í bílnum... hehe bara fyndir :) Þegar við loks náðum áfangastað var byrjað að versla, ég keypti mér nú ekki mikið þar, eina geggjaða puma peysu og puma sokka hehe :)  Eftir verslunarleiðangurinn var förinn haldið í Walibi, þangað komumst við án þess að villast :) Síðar um daginn var svo HM ferð tekin á þetta  :) Um kvöldið var svo plönuð diksó keila sem endaði ekki betur en tveggja tíma rúntur um lux landið því að María var að ná í vin sinn sem að var að koma í heimsókn til frænku sinnar í strassen... og já allir MJÖG NETT pirraðir aftur þar sem við vorum bara liggur við tynd í strassen :evil: Kvöldið endaði svo á muko muko þar sem flestir náðu sér í fórnalömb hahahahaha :) Og ja það er hægt að sjá myndir af þessu á myndasíðunni minni :) Búin að láta inn einhvað af myndum handa ykkur :)

Næsta helgi erum við að spá i að fara til Þýskalands í Phantasialand, erum að spokilera hvort við ættum að vera góð við okkur og gista þar eina nótt, kemur bara allt í ljós.. en það verður alla vega djamm því ég og Berglind förum svo næstu helgin til Alicante ;) Vona bara að það sé sól og hiti þar :)

Í gær fórum við svo á tónleika á White, þar var kona að nafni Þórunn að syngja, jú jú íslensk mær og jamm Jésus segji ekki meir hehehe....En jæja best að fara gera eh af viti.. verið nú öll dugleg að kommenta á síðuna annars fer mar bara að hætta þessu bulli hérna sko ;)

Over and out.... ANNA :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Dagsetning
21. mars 2010